Search

Frumupokar gegn Alzheimer

Genagræddar frumur eiga að gefa frá sér lyf líkt og bragðefni úr tepoka.

BIRT: 04/11/2014

LESTÍMI:

< 1 mínúta

Læknisfræði

Ný meðferð gegn Alzheimer hefur nú verið reynd á þremur sjúklingum á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi og þykir lofa góðu.

 

Aðferðinni má helst líkja við tepoka sem settur er í heitt vatn og bragðefnin berast þá út í vatnið, án þess að telaufin sjálf fylgi með. Í stað tepokans koma hér genagræddar frumur, umluktar himnu, sem framleiða lyf og græddar eru í heila sjúklingsins.

 

Frumurnar sjálfar komast ekki gegnum himnuna en það gerir lyfið sem þær framleiða.

 

Jafnframt taka frumurnar til sín næringarefni úr blóðrás sjúklingsins og geta þannig lifað allt að einu ári og haldið áfram lyfjagjöf til sjúkra frumna í heilanum.

 

Eitt erfiðasta vandamálið í baráttunni við Alzheimer er fólgið í hinum svonefnda „æðamúr“ í heilanum sem torveldar mjög að koma lyfjum úr blóðæðum út í heilann sjálfan. Áður hafa menn reynt dælur með lyfjaskammti en þær þarf að fylla á með reglulegu millibili. Þetta vandamál er nú leyst, vegna þess að lifandi frumur endurnýja sig sjálfar.

 

BIRT: 04/11/2014

vinsælustu greinarnar

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is