Heilsa

Gífurleg aukning á ristil- og endaþarmskrabbameini meðal ungs fólks: Þessi matvæli ættirðu að forðast

Fjöldi fólks undir fimmtugu sem greinist með sjúkdóminn hefur rokið upp. Vísindamenn telja að skýringuna sé að finna í þeim mat sem við setjum í innkaupakörfuna.

BIRT: 05/12/2025

Krabbamein í ristli og endaþarmi er þriðja algengasta tegund krabbameins á heimsvísu og næstalgengasta orsök dauðsfalla af völdum krabbameins.

 

Á síðustu áratugum hefur fjöldi einstaklinga yngri en fimmtugt, sem greinast með ristil- og endaþarmskrabbamein, aukist gríðarlega og vísindamenn hafa lengi reynt að finna skýringuna.

 

Nú virðast þeir komnir nær svari.

 

Rannsakendur við Flinders-háskóla í Ástralíu hafa birt tvær vísindarannsóknir sem báðar benda til tengsla milli þessarar krabbameinsgerðar og mataræðis.

Önnur þeirra er svokölluð meginsamantekt á 28 rannsóknum og sýnir í heild sinni að heilbrigðara mataræði lækkar tíðni sjúkdómsins.

 

Hin byggir á gögnum frá 97.561 einstaklingi og sýnir sérstaklega að mataræði ríkt af trefjum og ómettuðum fitum minnkar líkur á að þróa með sér slíkt krabbamein.

 

Rautt kjöt og áfengi

Aftur á móti eru ýmis atriði í mataræðinu sem auka áhættuna.

 

„Óhollt fæði, sem einkennist af miklu magni rauðs og unnsins kjöts, skyndibita, unnum kornvörum, áfengi og sykruðum gosdrykkjum, sýnir uggvænlega tengingu við aukna hættu á ristil- og endaþarmskrabbameini,“ útskýrir næringarfaraldsfræðingurinn Yohannes Melaku í fréttatilkynningu á vef Flinders-háskóla.

 

Melaku, sem starfar við háskólann og leiddi báðar rannsóknirnar, segir þessa þróun vera mikið áhyggjuefni.

 

Veldu bólgueyðandi mataræði

„Með þeirri aukningu á meltingarfæra­krabbameinum, þar á meðal ristil- og endaþarmskrabbameini, sem við sjáum nú hjá fólki undir fimmtugu, er orðið brýnt að vinna markvisst að heilbrigðari meltingu. Rannsóknir okkar benda til að betri þekking á næringu og átak í átt að hollari matarvenjum geti skipt sköpum í baráttunni gegn krabbameinum í meltingarfærum,“ segir hann.

 

Fjöldi fólks undir fimmtugu sem fær krabbamein fer vaxandi. Læknir og stjórnandi forvarnaáætlunar Yale School of Medicine fylgir sjálfur sérstöku mataræði og daglegri rútínu til að draga úr áhættunni á að fá sjúkdóminn. Hér geturðu lesið nánar um það:

Vísindamenn telja að hluti skýringarinnar felist í bólguástandi í þörmunum, svokallaðri bólguvirkni. Óhollt mataræði getur ýtt undir slíkt ástand.

 

Matvæli sem eru rík af andoxunarefnum – eins og ber, laufgrænmeti, ávextir, grænmeti, hnetur, túrmerik, engifer, hvítlaukur og ýmis önnur hráefni – hafa hins vegar bólgueyðandi áhrif og eru því sterklega til þess fallin að minnka áhættuna.

HÖFUNDUR: Bjørn Falck Madsen

© Shutterstock

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.