Maðurinn

Hvort heldurðu með Ronaldo eða Messi? Svarið gæti sagt meira um persónuleikann en þú heldur

Í mörg ár hafa knattspyrnuunnendur um allan heim deilt um hvort Messi eða Ronaldo sé betri. Nú bendir ný rannsókn til þess að afstaðan til þeirra geti endurspeglað dýpri mun á fólki.

Messi og Ronaldo hafa báðir skrifað nafn sitt í sögubækur knattspyrnunnar með ótal metum og afrekum. Ný rannsókn bendir þó til þess að þegar stuðningsmenn velja sér uppáhaldsleikmann skipti táknræn ímynd og gildi meira máli en metin sjálf.

BIRT: 27/06/2026

Tveir af mestu knattspyrnumönnum sögunnar hafa um árabil skipt stuðningsmönnum, sérfræðingum og knattspyrnuunnendum í tvær fylkingar.

 

Umræðan snýst yfirleitt um hvort þeirra hafi skorað fleiri mörk, lagt upp fleiri mörk, unnið fleiri titla eða átt eftirminnilegri einstaklingsframmistöðu.

 

En samkvæmt nýrri rannsókn snýst valið á milli Argentínumannsins Lionel Messi og Portúgalans Cristiano Ronaldo í raun um miklu meira en knattspyrnu.

 

Alþjóðlegur hópur vísindamanna greindi svör 10.661 þátttakanda í 26 löndum á sex heimsálfum og komst að athyglisverðri niðurstöðu.

Rannsóknin, sem hefur enn ekki farið í gegnum ritrýni, sýnir að stjórnmálaskoðanir voru langsterkasti einstaki þátturinn sem skýrði hvort fólk hélt með Messi eða Ronaldo.

 

„Stjórnmálafræðileg hugmyndafræði var sterkasti einstaki skýringarþátturinn,“ skrifa rannsakendurnir.

 

Samkeppnin segir meira um stuðningsmennina en stjörnurnar

Þátttakendur voru meðal annars spurðir um viðhorf sitt til knattspyrnustjarnanna tveggja, stjórnmálaskoðanir, afstöðu til valdboðshugsunar, fjölmiðlanotkunnar og ýmsa persónuleikaþætti.

 

Niðurstöðurnar sýndu að fólk með frjálslyndari stjórnmálaskoðanir var líklegra til að halda með Lionel Messi en þeir sem aðhylltust íhaldssamari skoðanir voru oftar stuðningsmenn Cristiano Ronaldo.

 

Að mati rannsakendanna skýrist þetta af því að leikmennirnir tveir hafa í gegnum árin orðið tákn ólíkra gilda og hugmynda.

Hlutfall þeirra sem kusu Lionel Messi (blátt) eða Cristiano Ronaldo (rautt). Þátttakendur mátu hversu vel þeim líkaði við hvorn leikmann á kvarða frá 1 til 7. Einkunnirnar voru síðan bornar saman til að sjá hvor naut meiri hylli í hverju landi. Við fyrstu sýn virðist sem Suður-Kóreubúar hafi meira dálæti á Lionel Messi en landar hans í Argentínu. En skýringin er í raun önnur: Suður-Kóreubúum líkar einfaldlega mun verr við Cristiano Ronaldo en öðrum þjóðum. Þar hlaut hann aðeins 3,54 stig af 7, sem gerir Suður-Kóreu að því landi þar sem andstaðan við Ronaldo mælist mest, að sögn rannsakendanna.

Messi er gjarnan tengdur við hógværð, liðsheild og fjölskyldugildi, en Ronaldo er oftar tengdur við einstaklingshyggju, sjálfsímynd og persónulegan árangur, segir aðalhöfundur rannsóknarinnar, Saifuddin Ahmed við Nanyang Technological háskólann í Singapúr, í fréttatilkynningu.

 

Að mati rannsakendanna getur valið á milli leikmannanna því gefið vísbendingar um víðtækari menningarleg gildi og stjórnmálaskoðanir.

 

Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að fólk sem lagði meira upp úr sterkum leiðtogum og þeir sem oftar horfðu á stutt fréttamyndbönd á samfélagsmiðlum virtust líklegri til að halda með Ronaldo.

 

Hins vegar kom fram veik fylgni milli meiri rökhugsunar og þess að kjósa Messi fremur.

 

Sum flottustu mörkin í fótbolta eru skoruð beint úr aukaspyrnum, þegar boltinn er skrúfaður fram hjá varnarveggnum eða yfir hann. En hvernig kemur snúningur á boltanum honum til að breyta um stefnu í loftinu?

Tengslin voru jafnframt mun sterkari meðal yngra fólks.

 

Eftir því sem þátttakendur voru eldri veiktust tengslin milli stjórnmálaskoðana og þess hvorum leikmanninum þeir héldu með. Í sumum aldurshópum hurfu þau nánast alveg.

 

Rannsakendurnir leggja þó áherslu á að rannsóknin fjalli ekki um persónuleika Messi og Ronaldo, heldur þá ímynd sem milljónir manna hafa af þeim.

 

Niðurstöðurnar bætast við vaxandi fjölda rannsókna sem benda til þess að stjórnmálaskoðanir móti í auknum mæli viðhorf fólks á sviðum sem virðast við fyrstu sýn óháð stjórnmálum.

 

Jafnvel umræða um það hver sé besti knattspyrnumaður heims getur því snúist um miklu meira en íþróttir.

HÖFUNDUR: Guðbjartur Finnbjörnsson, Søren Steensig

© Vitalii Vitleo /Shutterstock / lev radin / Shutterstock, © Ahmed, Saifuddin and Jaidka, Kokil and Rasul, Muhammad Ehab and Gil-López, Teresa. 2026

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.