Nú er hægt að fá sér kött sem lýsir í myrkri. Suður-kóreskir vísindamenn hafa klónað tvo ketti og bætt í þá geni sem veldur sjálflýsandi, rauðleitum bjarma í myrkri.
Vísindamennirnir tóku húðfrumur úr hvítum, tyrkneskum angóraketti og einangruðu genið sem kóðar fyrir sjálflýsandi prótíninu. Að þessu loknu var frumukjörnunum komið fyrir í eggfrumum 11 læðna.
Tveimur mánuðum síðar fæddust tveir heilbrigðir kettlingar og þegar þeir náðu tveggja mánaða aldri gátu vísindamennirnir séð sjálflýsandi rauðum bjarma stafa frá öllum líkamanum, þegar útfjólubláu ljósi var beint að þeim.
Þetta segja vísindamennirnir ryðja brautina fyrir fleiri genabreytingum á köttum í þeim tilgangi að sérhanna dýr, t.d. með tilliti til mannasjúkdóma.