Læknar fá blóð fyrir alla blóðfokka

BIRT: 04/11/2014

LESTÍMI:

< 1 mínútur

Læknisfræði

Fjölþjóðlegur hópur vísindamanna, undir forystu Henriks Clausen prófessors við Frumu- og sameindalæknisfræðistofnunina við Kaupmannahafnarháskóla., hefur þróað aðferð til að breyta gjafablóði í blóðflokkunum A, B og AB í blóðflokk O sem hæfir öllum.

 

Það sem einkennir blóðflokk O er að í blóðið vantar tvö andgen í formi sykurefna sem annars sitja á rauðu blóðkornunum.

 

Í blóðflokki A er annað efnið að finna, hitt í blóðflokki B, en í AB-blóði eru bæði efnin. Þar eð líkaminn myndar mótefni gegn því sykurefni sem ekki er að finna í líkamanum, er blóð í O-flokki öllum hættulaust, enda ber það engin efni sem ónæmiskerfið bregst við.

 

Henrik Clausen og félagar hans rannsökuðu þykkni úr 2.500 bakteríum sem búa yfir hæfni til að klippa sundur mismunandi sykurefni. Þykkni einnar bakteríunnar reyndist afar heppilegt til að fjarlægja A-sykurefnið en þykkni úr annarri tegund fjarlægði B-sykurefnið.

 

Ensímin sem standa á bak við þessa hæfni voru því næst einangruð og má nú nota til að breyta öllu gjafablóði í hið eftirsótta O-blóð.

 
 

BIRT: 04/11/2014

vinsælustu greinarnar

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu með áskrifandi að blaðinu?

Áskrifendur geta fengið áskrift af vefnum hér

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is