Læknar fá hreyfimynd af líkamanum

BIRT: 04/11/2014

LESTÍMI:

< 1 mínútur

Læknisfræði

Hópur kanadískra vísindamanna hefur nú skapað fyrsta fullkomna tölvulíkanið af mannslíkamanum. CAVEman kalla vísindamennirnir þetta sköpunarverk sitt, en þeir starfa við háskólann í Calgary.

 

CAVEman varð til á grundvelli líffræðibóka og ýmsum meginkerfum líkamans breytt í teiknaðar hreyfimyndir af listamönnum áður en þær öðluðust líf fyrir tilverknað tölvunnar.

 

Þótt CAVEman sé í fullri líkamsstærð má skala stærðina bæði upp og niður. Á sama hátt geta vísindamennirnir líka látið sér nægja að skoða afmarkaða hluta líkansins.

 

Ætlunin er að CAVEman verði verkfæri í höndum vísindamanna. Með þessari nýju tækni geta þeir skoðað árangur tilrauna innan frá með því að umbreyta læknisfræðilegum upplýsingum í hreyfimyndir.

 

Þannig geta þeir rannsakað sjúkdóma með þeim hætti sem áður hefur verið óhugsandi. CAVEman gerir skurðlæknum líka kleift að prófa nýja skurðtækni og krabbameinslæknar geta beitt geislameðferð mun nákvæmar en fyrr.

 

Og vísindamennirnir reikna með að þessa nýju tækni megi nýta við margvíslegar rannsóknir á vexti og þróun bæði varðandi framtíðarhorfur og flókin sýndarlíkön.

 
 

BIRT: 04/11/2014

vinsælustu greinarnar

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is