Má ekki hita upp mat með spínati?

Ég hef heyrt að mat með spínati og steinselju megi ekki hita nema einu sinni. Er það rétt?

BIRT: 04/11/2014

LESTÍMI:

< 1 mínútur

Engin hætta fylgir því að borða upphitaðan mat með spínati eða steinselju, svo fremi að þetta grænmeti hafi verið skolað vel fyrir matreiðsluna og matarleifarnar kældar eins og vera ber.

 

Það gamla húsráð að óráðlegt sé að hita upp aftur mat með spínati, steinselju eða öðru smáblöðóttu grænmeti, jafnvel þótt hann hafi verið frystur, á rætur að rekja til þess að á þessum fíngerðu blöðum geta auðveldlega leynst moldarleifar og þar með hugsanlega bakteríur.

 

Slíkar jarðbakteríur geta umbreytt köfnunarefnissambandinu nítrati í nítrít, ef maturinn er kældur nógu snemma eða geymdur við of hátt hitastig. Mikið magn af nítríti getur valdið eins konar innri köfnun, þar eð efnið bindur sig við rauðu blóðkornin og kemur í veg fyrir að þau nái að flytja súrefni um líkamann.

 

Hafi nítrat á annað borð náð að ummyndast í nítrít, brotnar það efni ekki niður við hitun og það er þess vegna sem svo nauðsynlegt er að losna við jarðbakteríurnar þegar grænmetið er skolað í upphafi. En að því tilskildu er ekkert að því að borða upphitaðan mat með spínati.

 
 

BIRT: 04/11/2014

vinsælustu greinarnar

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is