Heilsa

Mítlabit eða ristill? Sjáðu hvaða bóluefni eiga við um þig – og hvaða bólusetningar þú þarft og hver kostnaðurinn er

Apótek og læknar bjóða sífellt fleiri bóluefni, en þörfin fyrir bólusetningu getur verið mjög mismunandi eftir því hvort um er að ræða karl yfir fimmtugt, unga konu eða einstakling sem ver miklum tíma úti í náttúrunni.

Ristill stafar af hlaupabóluveiru sem hefur vaknað á ný. Sjúkdómurinn veldur sársaukafullum rauðleitum útbrotum og getur í sumum tilvikum leitt til langvinnra taugaverkja.

BIRT: 23/07/2026

Hlaupabóluveiran hverfur ekki úr líkamanum eftir að sýkingunni lýkur. Hún getur legið dulin í taugafrumum í áratugi og síðar á ævinni blossað upp sem sársaukafullur ristill.

 

Helmingur fólks fær ristil einhvern tíma á lífsleiðinni, en nú er hægt að bólusetja sig gegn sjúkdómnum. En er slík bólusetning nauðsynleg fyrir alla?

 

Hvað með bólusetningu gegn heilabólgu af völdum mítla (TBE), sem berst með mítlabiti?

 

Þetta eru aðeins tvö af þeim nýju bóluefnum sem hafa komið á markað á undanförnum árum. Í dag er hægt að bólusetja gegn sjúkdómum sem áður var ekki unnt að verjast með bólusetningu, en í mörgum tilvikum þarf fólk sjálft að greiða fyrir bóluefnið.

Hér er farið yfir hvaða bólusetningar geta skipt máli – og hvaða bóluefni flestir þurfa ekki að greiða fyrir.

 

HPV

HPV-veira getur valdið krabbameini

HPV (human papillomaveira) smitast við kynmök. Flestar HPV-sýkingar ganga yfir af sjálfu sér, en í sumum tilvikum geta þær leitt til krabbameins í leghálsi, leggöngum, getnaðarlim, endaþarmi eða munni og koki.

 

HPV-bólusetning veitir mesta vörn ef hún er gefin börnum áður en þau hefja kynlíf, en hún getur einnig gagnast fullorðnum. Ávinningurinn minnkar þó með hækkandi aldri þar sem líkurnar á að hafa þegar smitast af HPV aukast eftir því sem bólfélagar hafa verið fleiri.

 

Einstaklingar með skert ónæmiskerfi eiga erfiðara með að losa sig við HPV-sýkingu og eru því í meiri hættu á að þróa með sér krabbamein. Fyrir þann hóp getur bólusetning því verið sérstaklega mikilvæg.

 

Verð: Ókeypis í almennu bólusetningaráætlun barna. Að öðrum kosti kostar HPV-bóluefnið (Gardasil 9) 23.100 krónur fyrir hvern skammt. Yfirleitt þarf tvo skammta ef bólusetning hefst fyrir 15 ára aldur en þrjá skammta ef hún hefst síðar.

 

Algengar aukaverkanir: Eymsli á stungustað, höfuðverkur, vægur hiti og þreyta. Alvarlegar aukaverkanir eru sjaldgæfar.

 

RISTILL

Veira úr barnæsku vaknar aftur

Ef þú hefur fengið hlaupabólu leynist veiran áfram í taugum líkamans og getur síðar á ævinni vaknað aftur og valdið ristli.

 

Bóluefnið er einkum ætlað fólki 50 ára og eldra, þar sem bæði hættan á að fá ristil og alvarleiki sjúkdómsins aukast verulega með aldri. Talið er að um helmingur fólks fái ristil einhvern tíma á lífsleiðinni ef það er ekki bólusett.

 

Áhættan er einnig mun meiri hjá fólki með skert ónæmiskerfi, til dæmis vegna krabbameins, HIV-sýkingar, líffæraígræðslu eða meðferðar með ónæmisbælandi lyfjum. Hið sama á við um fólk með sykursýki eða langvinna lungnateppu (COPD).

 

Verð: Bóluefnið Shingrix kostar 27.100 krónur fyrir hvern skammt og þarf tvo skammta. Bólusetningin er almennt ekki niðurgreidd.

 

Algengar aukaverkanir: Mikil eymsli í handlegg, hiti, vöðvaverkir og þreyta í einn til þrjá daga. Nokkuð kröftug en skammvinn viðbrögð eru algeng.

 

TBE

Mítilborin veira getur valdið alvarlegri heilabólgu

TBE (tick-borne encephalitis) er veirusýking sem getur valdið bólgu í heila og mænu. Hún smitast með biti sýktra mítla, einkum á skóglendi og öðrum náttúrusvæðum þar sem dádýr eru algeng. Um fjórðungur þeirra sem smitast fær flensulík einkenni og í sumum tilvikum getur sjúkdómurinn valdið langvarandi lömun, skjálfta og öðrum alvarlegum taugaskaða.

 

Þótt smit séu enn fátíð hefur þeim fjölgað undanfarin ár. Líkur á að sýkingin valdi einkennum aukast með aldri og einkum eru karlar yfir fimmtugu í aukinni hættu á að veikjast.

 

Á Íslandi er bólusetning gegn TBE fyrst og fremst ætluð ferðamönnum sem fara til svæða þar sem sjúkdómurinn er landlægur. Þörfin ræðst meðal annars af áfangastað, lengd dvalar og fyrirhugaðri útivist

 

Verð: Bóluefnið TicoVac kostar 4.200 krónur fyrir hvern skammt fyrir fullorðna (3.900 krónur fyrir börn). Grunnbólusetning felst yfirleitt í þremur skömmtum og veitir margra ára vörn. Eftir það er mælt með örvunarskammti á 3–5 ára fresti, eftir aldri og áhættu.

 

Algengar aukaverkanir: Roði, þroti og eymsli á stungustað, auk höfuðverkjar og hita.

 

RSV

RSV getur valdið alvarlegum öndunarerfiðleikum

RSV (respiratory syncytial virus) er algengasta orsök alvarlegra sýkinga í neðri öndunarvegi hjá ungbörnum, en veiran getur smitað fólk á öllum aldri. Hjá hraustum einstaklingum á aldrinum 18–60 ára eru einkennin þó yfirleitt væg.

 

RSV-bólusetning er fyrst og fremst ætluð ungabörnum og fólki 60 ára og eldra, þar sem þessir hópar eru í mestri hættu á að fá alvarleg veikindi. Ungabörn geta fengið vernd ef móðirin er bólusett á meðgöngu eða með bólusetningu eftir fæðingu. Eldra fólk með langvinna hjarta- eða lungnasjúkdóma, svo sem langvinna lungnateppu (COPD), astma eða hjartabilun, sem og einstaklingar með skert ónæmiskerfi, eru í sérstaklega mikilli áhættu. RSV getur einnig gert undirliggjandi sjúkdóma mun verri, einkum hjá öldruðum sem eru heilsuveilir.

 

Verð: RSV-bóluefni er ekki enn á almennri gjaldskrá heilsugæslunnar, og því er ekki hægt að gefa upp opinbert verð. Barnshafandi konur greiða ekki fyrir RSV-bólusetningu sem er veitt innan mæðraverndar.

 

Algengar aukaverkanir: Eymsli í handlegg, þreyta, höfuðverkur og vöðvaverkir. Aukaverkanir eru yfirleitt vægar eða í meðallagi.

 

PNEUMKOKKAR

Pneumókokkar geta valdið blóðsýkingu

Pneumókokkar eru bakteríur sem geta valdið lungnabólgu og smitast með úðasmiti. Með hækkandi aldri eykst hættan á alvarlegri sýkingu sem getur þróast í blóðsýkingu eða heilahimnubólgu.

 

Bólusetning er ráðlögð fólki 65 ára og eldra og einnig yngra fólki sem er í aukinni áhættu. Hún getur meðal annars átt við ef fólk er í mikilli snertingu við ung börn, sem bera bakteríuna oft án þess að veikjast alvarlega. Bólusetning er sérstaklega mikilvæg fyrir einstaklinga með langvinna hjarta- eða lungnasjúkdóma, sykursýki, skert ónæmiskerfi eða þá sem hafa misst miltað.

 

Verð: Pneumovax kostar 4.800 krónur, Prevenar 20 kostar 12.600 krónur og Capvaxive kostar 15.100 krónur. Sumir áhættuhópar eiga rétt á greiðsluþátttöku.

 

Algengar aukaverkanir: Eymsli á stungustað, vægur hiti og þreyta. Aukaverkanir eru yfirleitt vægar.

HÖFUNDUR: Guðbjartur Finnbjörnsson, Gorm Palmgren

© Shutterstock/komkrit Preechachanwate, © Shutterstock/Jub-Job, © Shutterstock/7th Son Studio, © Shutterstock/Gorodenkoff, © Shutterstock/Daffa Sinai

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.