Það er engum blöðum um það að fletta að lífsstíll hefur mikil áhrif á hættuna á að þróa með sér heilabilun. Nú sýna nýjar rannsóknarniðurstöður að það getur skipt verulegu máli að leggja af einn tiltekinn óvana sem margir reyna að losa sig við.
Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að verndandi áhrifin aukist með tímanum. Því fyrr sem ósiðurinn er lagður af, þeim mun meiri virðist ávinningurinn vera.
Samkvæmt stórri ferilrannsókn sem birtist í vísindatímaritinu Neurology er hættan á heilabilun 16 prósentum minni hjá fólki sem hættir að reykja en hjá þeim sem halda áfram að nota tóbak.
Eftir um sjö ár án reykinga nálgast áhættan jafnvel það sem sést hjá fólki sem hefur aldrei reykt.
Rannsóknin náði til rúmlega 32.800 miðaldra og eldri einstaklinga sem voru lausir við heilabilun í upphafi rannsóknarinnar. Þátttakendunum var fylgt eftir í að meðaltali tíu ár og á þeim tíma greindust 5.868 þeirra með heilabilun.
Niðurstöðurnar breyttust lítið þótt rannsakendur tækju tillit til ýmissa þátta á borð við aldur, hreyfingu og hjarta- og æðaheilsu.
Þyngdaraukning getur dregið úr áhrifunum
Rannsóknin leiddi þó í ljós áhugaverðan fyrirvara. Það virðist skipta máli hvað gerist eftir að reykingum er hætt. Þeir þátttakendur sem bættu á sig allt að fimm kílóum eftir að hafa lagt tóbakið á hilluna nutu áfram verndandi áhrifa. Hjá þeim sem þyngdust um tíu kíló eða meira sást hins vegar enginn mælanlegur ávinningur fyrir heilsu heilans.
„Fólk hefur oft áhyggjur af því hvað gerist þegar það hættir að reykja, þar á meðal af þyngdaraukningu,“ segir aðalhöfundur rannsóknarinnar, Hui Chen, doktor við Zhejiang-háskóla í Kína, í tilkynningu.
„Niðurstöður okkar sýna að það að hætta að reykja tengist áfram betri heilaheilsu. Að halda þyngdinni í skefjum getur hins vegar hjálpað til við að varðveita þann ávinning.“
Skilaboðin eru skýr
Rannsakendurnir leggja áherslu á að rannsóknin sýni tengsl en sanni ekki beint orsakasamband. Einnig byggðu upplýsingarnar um þyngd og reykingavenjur á svörum þátttakendanna sjálfra og því geta einhverjar skekkjur leynst í gögnunum.
Þrátt fyrir það eru skilaboðin skýr: Það er aldrei of seint að hætta að reykja. Líkaminn – þar á meðal heilinn – virðist raunar bregðast við ákvörðuninni mun fyrr og jákvæðar en margir gera sér grein fyrir.
Fjöldi fólks með heilabilun mun margfaldast um allan heim á næstu áratugum og leiða til gríðarmikilla útgjalda. Enn hefur ekki fundist nein lækning, aðeins meðferð sem dregur úr einkennum:
„Niðurstöður okkar benda til þess að það að hætta að reykja geti stuðlað að betri heilaheilsu til lengri tíma litið. Þær undirstrika þó jafnframt að það skiptir máli hvað gerist eftir að reykingum er hætt,“ segir Hui Chen.
„Frekari rannsókna er þörf til að skilja betur hvernig þyngdarstjórnun og aðrir lífsstílsþættir geta hjálpað fólki að hámarka þann ávinning sem fæst af því að hætta að reykja þegar kemur að vitrænni getu á efri árum.“