Tveir flugmenn hurfu sporlaust í Atlantshafið

BIRT: 04/11/2014

LESTÍMI:

< 1 mínútur

Aðeins 14 dögum áður en bandaríski flugmaðurinn Charles Lindbergh varð fyrstur til að fljúga yfir Atlantshaf 1927 og þar með beint inn í sögubækurnar, reyndu tveir Frakkar að gera hið sama.

 

En þeir hurfu sporlaust á leiðinni. Francois Coli var 45 ára og Charles Nungesser 10 árum yngri. Þeir voru báðir stríðshetjur úr fyrri heimsstyrjöld og höfðu margra ára flugreynslu.

 

Þeir hófu ferðina frá París 8. maí 1927 í flugvélinni l‘Oiseau Blanc – Hvíta fuglinum. Í New York hópaðist fólk saman til að verða vitni að þeim heimssögulega viðburði þegar þeir lentu, en flugvélin kom aldrei.

 

Leit að mönnunum bar engan árangur. Þeir höfðu síðast sést yfir strönd Írlands og útbreiddasta skýringin var sú að flugvélin hefði hrapað. Aðrir hafa haldið því fram að hún hafi verið skotin niður.

 
 

BIRT: 04/11/2014

vinsælustu greinarnar

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is