Heilsa

Eftir 1500 heilaskannanir er sérfræðingur í heilabilun ekki í vafa: Hér eru áhugamálin sem geta hægt á öldrun heilans.

Í nýrri rannsókn fylgdist vísindamaðurinn Agustín Ibáñez með því hvernig aðeins nokkrar vikur af einfaldri tómstundastarfsemi virtust hafa umtalsverð áhrif á heilastarfsemi hóps þátttakenda. Og samkvæmt taugavísindamanninum þarf hvorki hæfileika né reynslu til að njóta ávinningsins.
Með nýrri rannsókn sinni vill heilasérfræðingurinn Agustín Ibáñez uppræta tvær rótgrónar ranghugmyndir innan vísindasamfélagsins um ákveðna tegund frístundastarfa.

BIRT: 25/10/2025

Ef þú vilt halda heilanum ungum gæti verið kominn tími til að finna þér nýtt áhugamál.

 

Vísindamenn við Adolfo Ibáñez-háskólann í Santiago í Chile hafa nefnilega komist að því að ákveðin tegund frístundastarfa getur hægt á öldrun heilans.

 

Og samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar þarftu hvorki að vera undrabarn né hafa margra ára reynslu til að njóta ávinningsins.

 

„Það er aldrei of seint að byrja. Hjá fullorðnum leiddu aðeins örfáar vikur þjálfunar til mælanlegrar endurnýjunar í heilanum,“ skrifar heilasérfræðingurinn Agustín Ibáñez, sem stýrði rannsókninni, í tölvupósti til Lifandi vísinda.

 

Það eina sem skiptir máli er að nálgast nýja áhugamálið á réttan hátt.

 

Þess vegna deilir Agustín Ibáñez nú niðurstöðum sínum svo við getum lært hvernig best er að halda heilanum ungum og skörpum.

 

Nánar tiltekið eru það skapandi athafnir eins og tónlist, málverk, dans og jafnvel ákveðnir tölvuleikir sem hafa þessi áhrif.

 

Þetta kom í ljós í nýrri rannsókn sem birtist í hinu virta tímariti Nature Communications.

 

Áhuginn á að kanna tengsl slíkra athafna og aldurs heilans sprettur bæði af persónulegum og fræðilegum hvötum, skrifar Agustín Ibáñez.

 

Sem barn glímdi hann við athyglisbrest og innhverfu og fannst hann oft ekki á réttum stað í lífinu. En þegar hann fór að spila á gítar á unglingsárunum fann hann sér athvarf.

 

„Í tónlistinni gat ég tjáð tilfinningar sem áttu sér annars engan farveg,“ segir hann.

 

Síðan hefur hann notað tónlist sem hvíld frá álagi, og hann finnur enn í dag hvernig hún hjálpar honum með að einbeitinga sér og styrkir andlega líðan hans.

 

Heilaklukkur

Enn í dag ríkja tvær rótgrónar ranghugmyndir um sköpunargáfu í vísindasamfélaginu, segir Agustín Ibáñez. Sú fyrri er að sköpunargáfa sé dularfullt fyrirbæri sem ekki verði mælt með neinum hætti, og hin að hún skipti í raun engu máli fyrir líffræði mannsins.

 

Til að ögra þessum hugmyndum framkvæmdi Ibáñez og rannsóknarhópur hans heilaskannanir á 1240 manneskjum frá tíu löndum til að þróa svokallaðar „heilaklukkur“, eins og þau nefna það í rannsókn sinni.

 

Hugtakið lýsir eins konar líkani sem mælir muninn á lífaldri manns og aldri heilans eins og hann lítur út hvert skiptið.

 

Nánar tiltekið byggðu vísindamennirnir heilaklukkurnar sínar á bæði EEG- og MEG-skönnuðum gögnum.

 

EEG mælir rafboð heilans með rafskautum sem staðsett eru á hársverðinum, en MEG greinir segulsvið sem myndast við starfsemi taugafrumnanna.

 

Með þessum heilaklukkum gátu vísindamennirnir rannsakað nákvæmlega hversu vel mismunandi svæði heilans vinna saman — og þannig reiknað út muninn á lífaldri manns og hinum raunverulega aldri heilans.

 

Sjö árum yngri

Að því loknu beittu vísindamennirnir heilaklukkum sínum á 232 manneskjur — tangódansara, tónlistarmenn, myndlistarfólk og tölvuleikjaspilara — á mismunandi aldri og með ólíka reynslu, til að bera saman áætlaðan aldur heilans við raunverulegan aldur þeirra.

 

Niðurstöðurnar sýndu skýrt mynstur.

Um sérfræðinginn

  • Agustín Ibáñez er heilasérfræðingur við Adolfo Ibáñez-háskólann í höfuðborg Chile, Santiago.

 

  • Hann er fæddur í San Juan í Argentínu árið 1975.

 

  • Rannsóknir hans beinast einkum að heilabilun, öldrun heilans og ójöfnuði í heilbrigði heilans.

 

 

Í stóru dráttum virtust allar hinar skapandi athafnir hægja á öldrun heilans.

 

Því meiri reynslu sem þátttakendur höfðu á sínu sviði, þeim mun hægari var öldrunin. Hjá reyndari einstaklingum voru taugatengslin sérstaklega sterk á svæðum heilans sem tengjast hreyfistjórn, samhæfingu og takti.

 

Áhrifin voru mest hjá reyndum tangódönsurum, þar sem heilinn reyndist að meðaltali sjö árum yngri en lífaldur þeirra.

 

„Tangó krefst mikillar færni í hreyfingu, samhæfingu og skipulagningu, og þess vegna er dansinn frábær leið til að halda heilanum ungum,“ útskýrir Ibáñez.

 

Rannsóknin sýndi einnig að jákvæð áhrif sköpunar birtast einkum á þeim svæðum heilans sem stýra minningu og ákvarðanatöku, og að skapandi tjáning virðist efla samvinnu milli ólíkra hluta heilans.

 

Þarf ekki mikið til

Vel er hægt að halda heilanum virkum og skörpum án þess að verða atvinnumaður í tangó.

 

Ibáñez og rannsóknarteymi hans geta ekki sagt nákvæmlega hversu mikla tíma eða ástundun þarf í skapandi iðju til að uppskera árangur í formi yngri heila, en eitt er þó ljóst:

 

Ávinningurinn af sköpun vex í sama mæli og ákafinn, einbeitingin og tíminn sem lagður er í hana – hvort sem um er að ræða ævilangt áhugamál eða nýja tómstund sem sinnt er af reglusemi og einlægni.

 

„Þú þarft ekki að vera da Vinci,“ skrifar Ibáñez.


„Styttri lotur geta líka haft áhrif.“

 

Hann bendir á að rannsóknin gefi einnig vísbendingu um hve „lítið magn“ dans, tónlistar eða að mála þarf til áður en heilinn fer að njóta góðs af þessum öldrunarhemjandi áhrifum.

 

Sumir þátttakendur fengu það verkefni að sinna skipulögðu skapandi starfi í 3–10 klukkustundir á viku í stuttan tíma, og jafnvel þar gátu vísindamennirnir séð mælanlegar breytingar á aldri heilans.

 

Vísindamennirnir uppgötvuðu líka nokkuð athyglisvert þegar þeir létu minni hóp spila tölvuleikinn StarCraft II, sem krefst bæði stefnumiðaðrar og skapandi hugsunar.

 

Eftir nokkrar vikur jókst munurinn á lífaldri þeirra og mældum heilaaldri — öfugt við samanburðarhóp sem spilaði leik með fastmótuðum reglum en þar urðu engar breytingar sjáanlegar.

 

Þannig virðist hugkvæmni og skapandi nálgun við verkefni halda heilanum ungum, en stífar skorður gera það ekki.

 

Það styður þá fullyrðingu Ibáñez að áhrifin spretti af því að frjálsari hugsun virkjar fleiri svæði heilans samtímis.

 

Helgarhetjur

Ibáñez ber þetta saman við svokallaða „helgarhetjur“ — fólk sem hreyfir sig aðeins einn til tvo daga í viku en fær samt góða heilsubót — og segir að markviss skapandi iðja, jafnvel aðeins í 30 mínútur á viku, geti skipt máli.

 

Hann leggur þó áherslu á að áhuginn einn og sér dugi ekki ef markmiðið er að halda heilanum virkum og skörpum með áhugamáli.

 

Maður þarf að gefa sér reglulega tíma í æfingar, vera einbeittur og finna persónulega ánægju í því sem maður er að gera, segir vísindamaðurinn.

 

Hann bendir líka á að sköpun sé aðeins lítill hluti af því sem heldur heilanum heilbrigðum.

Bandarískir og kínverskir vísindamenn hafa reiknað út að tvær tegundir tilfinninga virðast auka öldrun hraðar en reykingar.

Að sögn Ibáñez ætti skapandi iðkun að fara hönd í hönd með reglulegri hreyfingu og styrktaræfingum, góðum og reglubundnum svefni, hollu mataræði og innihaldsríkum félagslegum samskiptum.

 

„Ef þú sameinar þetta allt hefurðu sterka vörn gegn hraðari öldrun heilans,“ skrifar hann.

HÖFUNDUR: Kristoffer Nørager Møller

© Agustín Ibáñez

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.