Lifandi Saga

Hver gerði fyrstu þrívíddarkvikmyndina? 

Árið 1922 var myndin „The Power of Love“ frumsýnd í Los Angeles. Leikstjórinn taldi að þessi mynd myndi umbylta kvikmyndaheiminum en almenningur reyndist ekki vera tilbúinn fyrir þrívíddartæknina.

BIRT: 20/09/2023

Þann 27. september 1922 var hópi blaðamanna og annarra gesta boðið að vera vitni að sögulegum atburði á Ambassador Theater í Los Angeles.

 

Á meðan fólkið – sem hafði sett upp sérstök gleraugu – starði á hvíta tjaldið opinberaðist fyrsta þrívíddarmyndin fyrir augum þeirra.

 

Þögla myndin „The Power of Love“ var íburðarmikið ástardrama sem var tekið upp með myndavél með tveimur linsum. En framleiðandi kvikmyndarinnar, Harry K. Fairall hafði nýlega fundið upp þennan búnað.

Topp 3: Vinsælustu þrívíddarmyndirnar

Frá því að fyrsta þrívíddarmyndin kom fram 1922 hafa kvikmyndir með slíkum effektum verið ákaflega farsælar í bíóum. Þær vinsælustu hafa mokað inn svimandi upphæðum. Listinn nær bæði til upprunalegra þrívíddarmynda og mynda sem síðar hefur verið breytt í þrívídd.
1. Avatar
  • Ár: 2009
  • Flokkur: Science Fiction
  • Tekjur: Um 500 milljarðar kr.
  • Söguþráður: Hermaður er sendur í leiðangur á fjarlægt tungl þar sem hann verður ástfanginn af einum af íbúum þess.
2. Jurassic World
  • Ár: 2015
  • Flokkur: Action/Science Fiction
  • Tekjur: Um 253 milljarðar kr.
  • Söguþráður: Í skemmtigarði með risaeðlum fer allt til andskotans þegar erfðabættir blendingar af risaeðlum valda miklum óskunda.
3. The Avengers
  • Ár: 2012
  • Flokkur: Ofurhetjumynd
  • Tekjur: Um 230 milljarðar kr.
  • Söguþráður: Ofurhetjurnar Iron Man, Captain America, Hulk, Thor, Black Widow og Hawkeye verða að vinna saman til að bjarga heiminum frá hinum illa Loka.

Þegar bíógestir settu upp gleraugun sköpuðu upptökurnar frá linsunum tveimur eins konar dýpt sem varð til þess að myndin á tjaldinu virtist þrívíð.

 

Myndin var reyndar svo háþróuð að bíógestir gátu sjálfir ákvarðað endinn á henni með því að loka ýmist hægra eða vinstra auga. Með þeim hætti réðu þeir hvort myndin hefði gleðilegan endi eða dapurlegan.

 

Myndin sló ekki í gegn

Þrátt fyrir þessa nýju uppfinningu sló þessi tækni ekki í gegn. Kvikmyndin fékk ágætis dóma í blöðunum en engin önnur bíóhús vildu sýna þessa byltingarkenndu kvikmynd.

 

Ári síðar var „The Power of Love“ keypt af dreifingarfyrirtæki sem seldi myndina til bandarískra kvikmyndahúsa sem venjulega tvívíða mynd með titlinum „Forbidden Lover“.

Fyrsta kvikmyndin í 3D „The Power of Love“ var frumsýnd árið 1922

Síðan hafa báðar þessar útgáfur glatast. Það var síðan fyrst þremur áratugum síðar sem Hollywood sneri sér aftur að þrívíddarmyndum þegar hryllingsmyndin „The Man in the Dark“ var frumsýnd í apríl 1953.

 

Þá reyndist aðsóknin fara langt fram úr vonum sem varð til þess að nær öll kvikmyndaver tóku að framleiða þrívíddarmyndir. Og sjötti áratugur tuttugustu aldar reyndist vera blómaskeið þeirra.

LESTU EINNIG

HÖFUNDUR: EMRAH SÜTCÜ

© Shutterstock. © Internet Archive

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Náttúran

6 atriði sem þú ættir að vita um skeggskottu: Gráðugur ættingi silfurskottunnar gæti brátt hertekið heimili þitt

Tækni

Lúxus eftir dómsdag: Lítum á skýli milljarðamæringanna

Menning og saga

Indiana Jones raunveruleikans leitaði að sáttmálsörkinni

Náttúran

Átvögl sjávarins geta kælt loftslagið

Lifandi Saga

Í bók frá miðöldum leyndist óþekkt portrett af Michelangelo

Tækni

Edison gegn Tesla: Meistarar rafmagnsins hötuðust

Maðurinn

7 magnaðar staðreyndir um augu þín

Tækni

Minnislisti nördanna: Búnaður

Tækni

Nú fá róbótar siðferðilegan áttavita

Heilsa

Ný tækni vekur latar sáðfrumur

Jörðin

Glóandi sprengingar skapa hljóðhöggbylgjur

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.790 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is