Lifandi Saga

Kanína réðst á forseta Bandaríkjanna

Í veiðiferð árið 1979 var ráðist á leiðtoga valdamesta ríkis heims. Fjölmiðlar kölluðu þetta óvenjulega atvik „árás morðóðu kanínunnar“ – og dýrafræðingur útskýrði hvers vegna kanínan gerði árás.

Fæstir starfsmanna Carters trúðu honum þegar hann sagði frá átökum sínum við kanínu. Sem betur fer hafði ljósmyndari úr fjölmiðlasveit Hvíta hússins náð mynd af viðureigninni.

BIRT: 10/06/2026

Í veiðiferð árið 1979 var ráðist á leiðtoga valdamesta ríkis heims.

 

Fjölmiðlar kölluðu þetta óvenjulega atvik „árás morðóðu kanínunnar“ – og dýrafræðingur útskýrði hvers vegna kanínan gerði árás. 

 

Jimmy Carter hafði dálæti á veiðum og þann 20. apríl 1979 var sitjandi Bandaríkjaforseti úti á litlum árabát þegar mýrarkanína kom syndandi í átt að honum á miklum hraða.

 

Með því að slá frá sér með annarri árinni tókst honum að halda kanínunni frá bátnum. Atvikið hefði aldrei spurst út ef lausmáll fréttafulltrúi hefði ekki lekið því í fjölmiðla.Bandarískir blaðamenn kölluðu atvikið „The killer rabbit attack“ – árás morðóðu kanínunnar.

Flótti kanínunnar komst í fréttirnar

Vorið 1979 var forseti Bandaríkjanna í fríi á æskuheimili sínu, jarðhnetubúgarði nálægt bænum Plains í Georgíu.

 

Á landareigninni var lítið stöðuvatn sem Carter hafði gaman af að veiða í einsamall. Hann var því einn í árabátnum þegar kanínan réðst til atlögu. Carter tókst að hræða kanínuna sem gafst upp á að klifra um borð í bátinn og synti í staðinn að landi. Þar hvarf hún í gróðrinum.

 

Forsetinn skemmti síðar starfsfólki sínu með frásögn af þessu fyndna atviki en það var ekki ætlunin að sagan yrði opinber. Blaðafulltrúi Carters, Jody Powell, sagði hins vegar blaðamanninum Brooks Jackson hjá AP fréttastofunni söguna.

Sagan var komin á flug og The Washington Post valdi að birta grein með fyrirsögninni „Kanína ræðst á forsetann“ en The New York Times skrifaði „Saga af Carter og morðóðu kanínunni“.

 

Samkvæmt Jody Powell hafði kanínan „hvæst ógnandi, sýnt tennurnar og þanið út nasirnar“.

 

Forsetinn vísaði sögunni á bug í The New York Times daginn eftir með svohljóðandi yfirlýsingu: „Þetta var bara ósköp venjuleg mýrarkanína frá Georgíu.“

Mýrarkanínan lifir villt í votlendi í suðurhluta Bandaríkjanna. Hún er næturdýr sem verndar yfirráðasvæði sitt og er óhrædd við átök.

Að sögn Carters hafði kanínan stokkið út í vatnið til að flýja frá rándýri. Í sömu grein studdi dýrafræðingurinn Vagn Flyger forsetann:

 

„Hún var líklega bara hrædd og í leit að þurrum stað til að fela sig á.“

HÖFUNDUR: Natasja Brostrøm,Andreas Abildgaard

© White House photographer/Wikimedia Commons. © Wirestock Creators/Shutterstock

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.