Heilsa

Vísindamenn hafa gert byltingarkennda uppgötvun um meðgöngur sem gæti varpað ljósi á hvers vegna sumar konur eru í aukinni hættu á fylgikvillum

Eftir að hafa greint nær 1,2 milljónir fruma hafa bandarískir vísindamenn fundið lykilspor í líffræðinni sem opnar leið að nýjum meðferðum við erfiðum meðgöngum.

Meðal algengustu fylgikvilla á meðgöngu eru meðgöngueitrun og fyrirburafæðing, sem báðar geta ógnað bæði móður og barni.

BIRT: 17/04/2026

Um það bil viku eftir að kona verður barnshafandi fer af stað flókið líffræðilegt samspil milli móður og fósturs.

 

Vefur úr líkama móðurinnar og vefur úr fóstrinu mætast á litlu svæði sem gegnir lykilhlutverki: Þar berast næringarefni frá móður til fósturs með blóðinu, og jafnframt er komið í veg fyrir að ónæmiskerfi móðurinnar hafni fóstrinu, þótt það sé erfðafræðilega séð að hálfu leyti framandi henni.

 

Þessi samsetta bygging, sem verður til úr fylgjunni og slímhúð legsins, er gjarnan líkt við líffræðilega brú milli konunnar og barns hennar.

 

Nú hefur hópur vísindamanna við Kaliforníuháskóla í San Francisco í fyrsta sinn kortlagt þessa merkilegu brú með áður óþekktri nákvæmni.

 

Og niðurstöðurnar benda til þess að uppgötvunin geti haft verulega þýðingu fyrir skilning og meðferð alvarlegra fylgikvilla á meðgöngu.

Vísindamenn fundu eitthvað sem aldrei hefur áður sést.

Snemma á meðgöngu færa sumar frumur sig úr fóstrinu inn í legið og breyta stórum æðum móðurinnar. Þetta er afar ágengt ferli sem bókstaflega endurmótar líkama konunnar, en er nauðsynlegt til að tryggja að fylgjan fái nægt blóð til að næra hið stækkandi barn.

 

Til að öðlast dýpri skilning á þessu lykilferli rannsökuðu vísindamennirnir nær 1,2 milljónir fruma úr fylgju og legi, safnað úr meðgöngum á mismunandi stigum, frá fimmtu viku og fram í þá þrítugustu og níundu.

 

Í þessari umfangsmiklu greiningu uppgötvuðu þeir alveg nýja gerð móðurfrumu sem finnst aðeins á meðgöngu og gegnir því hlutverki sem þeir líkja við eins konar „hraðahindrun“.

 

Í stuttu máli stýrir þessi nýuppgötvaða fruma því hversu hratt og hversu djúpt frumur úr fóstrinu geta þrengt sér inn í legvegginn. Þannig tryggir hún að ferlið fari fram af nákvæmni og undir ströngu eftirliti og ver bæði móður og barn gegn fylgikvillum.

Legið er eitt teygjanlegasta og öflugasta líffæri líkamans: Á meðgöngu getur það aukið rúmmál sitt meira en fimm hundruðfalt um leið og það þróar með sér kröftuga samdrætti sem að lokum þrýsta barninu út í gegnum fæðingarveginn.

Þetta er aðeins upphafið.

Í næsta skrefi rannsóknarinnar sameinuðu vísindamennirnir erfðagögn frá yfir 10.000 sjúklingum við nýja frumukortið.

 

Þar kom í ljós að meðgöngueitrun stafar oft af því að samskipti milli fruma móður og barns bregðast, þannig að æðarnar umbreytast ekki á réttan hátt. Sama á við um fyrirburafæðingar og fósturlát.

 

Heilar barna þroskast öðruvísi en ella ef mæðurnar hafa lifað á fituríkri fæðu á meðgöngunni. Börnunum hættir þá frekar til að þjást af kvíða og þunglyndi síðar meir á lífsleiðinni:

„Ef við fáum fleiri frumur og fleiri sýni til skoðunar má búast við mörgum nýjum og spennandi uppgötvunum,“ segir Jingjing Li, einn vísindamannanna að baki rannsókninni, í samtali við Live Science og bætir við:

 

„Þetta er því aðeins upphafið.“

 

Rannsóknin birtist í vísindatímaritinu Nature.

HÖFUNDUR: Guðbjartur Finnbjörnsson, Kristoffer Nørager Møller

© 3dMediSphere /shutterstock, © Shutterstock

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.