Alheimurinn

Loftsteinn hafnaði í svefnherbergi. Nú hafa vísindamenn gert óvænta uppgötvun í honum

Steinn skall á þakinu og lenti í svefnherbergi hjá manni af tilviljun. Þegar vísindamenn rannsökuðu loftsteininn fundu þeir í honum eitthvað alveg sérstakt sem gæti opnað nýja sýn á mikilvægan kafla í sögu Jarðar.

Myndirnar sýna gat á þaki húss í Hillsborough þar sem loftsteinn féll niður og skildi húseigandann eftir í áfalli. Nú hafa vísindamenn rannsakað loftsteininn og birt niðurstöður greiningarinnar í vísindatímariti.

BIRT: 22/07/2026

Þann 16. júlí árið 2024 brá húseiganda í bænum Hillsborough í New Jersey í Bandaríkjunum heldur betur í brún.

 

Á gólfi svefnherbergisins lá eins kílógramma þungur steinn sem hafði örfáum sekúndum áður brotist í gegnum bæði þak og loft og skilið eftir gat svo húseigandinn gat horft beint upp til himins.

 

Nokkrar ratsjárstöðvar og myndavélar höfðu numið steininn þegar hann fór í gegnum lofthjúp Jarðar áður en hann hafnaði á húsinu.

 

Nú hafa vísindamenn, meðal annars frá rannsóknastofnuninni SETI Institute og NASA, rannsakað steininn og komist að óvæntri niðurstöðu.

Þeir fundu sérstök sölt í loftsteininum sem þeir telja að eigi uppruna sinn á smástirni á braut um sólina, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá rannsóknarhópnum.

 

Loftsteinn úr sólkerfinu

Vísindamennirnir rannsökuðu steininn, sem reyndist vera loftsteinn, það er brot úr himinhnetti sem hefur farið í gegnum lofthjúp Jarðar og lent á yfirborði hennar.

 

Loftsteinninn var á 14,4 kílómetra hraða á sekúndu þegar hann fór inn í lofthjúp Jarðar.

 

Með gögnum úr myndavélum, meðal annars í New York og New Jersey, tókst vísindamönnunum að rekja feril loftsteinsins þennan dag í júlí 2024.

 

Þeir telja að hann eigi uppruna sinn í innri hluta smástirnabeltisins, þar sem flest smástirni sólkerfisins eru á braut um sólina.

 

Þegar loftsteinninn var um 35 kílómetra yfir yfirborði Jarðar klofnaði hann í þúsundir smærri brota. Eitt þeirra hafnaði hins vegar í svefnherberginu í Hillsborough og rataði þannig í hendur vísindamannanna.

Myndin er unnin af SETI stofnuninni með aðstoð gervigreindar. Hún sýnir hvernig smástirnið, sem loftsteinninn er talinn hafa komið frá, gæti hafa litið út. Vísindamenn hjá SETI rannsökuðu loftsteininn sem féll í gegnum þak íbúðarhúss.

Greining loftsteinsins leiddi í ljós að hann hefur að öllum líkindum verið nálægt yfirborði þess smástirnis sem hann brotnaði úr. Þar hefur hann líklega verið hulinn vatni eða umvafinn því, en slíkt sjá vísindamenn yfirleitt ekki í þessari gerð loftsteina.

 

Þeir telja að vatnið hafi síðar gufað upp og skilið eftir sölt á loftsteininum.

 

Loftsteinninn gæti varpað ljósi á upphaf lífs á Jörðinni

 

Vísindamennirnir telja að söltin sem fundust í loftsteininum geti aukið skilning á því hvernig lífsnauðsynleg steinefni bárust til Jarðar og áttu þátt í að skapa skilyrði fyrir líf fyrir milljörðum ára.

 

Í loftsteininum fundust einnig vatnsleysanleg lífræn efnasambönd. Vísindamennirnir telja að samspil steinefna, saltvatns og lífrænna efna á smástirninu kunni að hafa leitt til myndunar amínósýra og annarra vatnsleysanlegra lífrænna sameinda.

 

Ann Hodges lifði rólegu lífi í smábænum Sylacauga í Alabama þar til loftsteinn hrapaði í gegnum þakið á henni og lenti á mjöðm hennar:

Vísindamennirnir telja að loftsteinar af þessari gerð hafi flutt amínósýrur og önnur lífræn efni til Jarðar fyrir mörgum milljörðum ára.

 

Næsta skref rannsóknarinnar er að kanna hvort saltsteinefnin í þessum loftsteini séu sambærileg þeim sem fundist hafa í sýnum frá hinum þekktu smástirnum Ryugu og Bennu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu rannsóknarhópsins.

 

Niðurstöðurnar birtust í vísindatímaritinu Science Advances.

HÖFUNDUR: Guðbjartur Finnbjörnsson, Stine Hansen

© SETI Institute

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.