Eiginlega var ekki til sú meðferð, sem 13 ára breska stúlkan Alyssa hafði ekki prófað.
Á árinu 2021 var hún greind með bráðahvítblæði, heiftúðugt krabbamein sem ræðst á T-frumur ónæmiskerfisins, einmitt þær frumur sem almennt hafa þann starfa að verjast sýkingum og berjast gegn þeim.
Til að reyna að vinna bug á sjúkdómnum undirgekkst hún bæði efnameðferð og mergskipti mánuðum saman.
En alltaf sneri krabbameinið aftur.
Það eina sem læknar gátu nú boðið henni var alveg ný og enn órannsökuð og óskjalfest DNA-meðferð.
Breska stúlkan Alyssa, 13 ára, hefur verið laus við krabbameinið í hálft ár eftir nýja DNA-meðferð.
Batnaði á 28 dögum
Í maí á þessu ári varð hún fyrsti sjúklingur sögunnar í klínískri tilraun til að meðhöndla krabbamein með tækni sem kallast „umritun basa“.
Í sem styst máli fólst meðferðin í því að Alyssa fékk heilbrigðar T-frumur úr frumugjafa.
Genum frumnanna var breytt þannig að þær yrðu færar um að leita uppi og eyða krabbasjúkum T-frumum stúlkunnar sjálfrar – vel að merkja án þess að ráðast á aðrar frumur líkamans.
Hér má heyra Alyssu og móður hennar segja frá sjúkdómnum:
Eftir aðeins 28 daga á nýja lyfinu var Alyssu tekið að batna og sex mánuðum síðar segjast læknarnir ekki finna nein ummerki um krabbamein hjá þessari 13 ára stúlku. Enn er þó fylgst vel með henni ef krabbameinið skyldi taka sig upp.
Mikil tímamót í krabbameinslækningum
Waseem Qasim, prófessor í frumu- og genalækningum hjá Great Ormond Street-sjúkrahúsinu í London, er einn læknanna sem stóðu að meðferðinni og hann segir þessa nýju tækni marka mikil tímamót í krabbameinslækningum.
„Þetta er þróaðasta genatækni okkar fram til þessa og ryður brautina fyrir aðrar nýjungar og gefur sjúkum börnum betri framtíðarhorfur,“ segir hann.
Læknarnir að baki þessari tilraun hyggjast nú finna allt að tíu aðra sjúklinga með T-frumukrabbamein, sem ekki tekst að lækna með öðrum aðferðum.
Jafnframt hyggjast þeir rannsaka hvort aðferðin geti líka komið að haldi gegn öðrum gerðum blóðkrabba.