Tíu arma smokkfiskar sjá í þrívídd

Sjón og heilageta smokkfisksins er mun öflugri en vísindamenn hafa hingað til haldið. Þetta sýnir ný og frumleg tilraun þar sem lindýrin voru búin rauðgrænum þrívíddargleraugum.

BIRT: 10/05/2023

LESTÍMI:

2 mínútur

Það er nánast ógerlegt fyrir dýrafræðinga að öðlast fullvissu um það hvernig dýr sjá umhverfi sitt. Vísindamenn hjá Minnesotaháskóla í BNA notuðu uppfinningasemina í tilraun sem afhjúpaði að tíu arma smokkfiskur hefur þrívíddarsjón rétt eins og menn.

 

Smokkfiskarnir fengu rauð og græn þrívíddargleraugu og síðan var þeim sýnt myndband af rækju sem flutti sig til á skjá.

 

Smokkfiskarnir teygðu sig þannig eftir rækjunni að ljóst var að þeir sáu hana á nákvæmlega sama stað og menn hefðu gert. Þetta sýnir að smokkfiskarnir nota alveg sömu aðferð og menn til að meta fjarlægð.

Augu tíu arma smokkfisks ákvarða fjarlægð á sama hátt og augu manna. Þetta sýndi tilraun með rauðum og grænum þrívíddargleraugum.

Vísindamenn furða sig á heila smokkfisksins

Niðurstaðan kemur á óvart því að öðru leyti er sjón þeirra um margt ólík sjón manna.

 

Við höfum „steríósjón“ þannig að sjónsvið augnanna skarast. Sjónstöðvar heilans bera stöðugt saman myndir frá báðum augum og örlítill munur á þeim gerir heilanum kleift að ákvarða fjarlægð til allra hluta í sjónsviðinu.

 

MYNDSKEIÐ: Sjáðu smokkfiskinn með þrívíddargleraugu

Sjónsviðið sjálft takmarkast hins vegar af því að við getum ekki hreyft augun öðru vísi en samræmt. Smokkfiskurinn getur á hinn bóginn hreyft hvort auga fyrir sig.

 

Vísindamönnunum kom á óvart að smokkfiskurinn skuli hafa heilagetu til að ráða við bæði „steríósjón“ og ósamstæðar augnhreyfingar.

 

Skýringin gæti verið sú að þrívíddarsjónin nái aðeins til hluta sem eru á hreyfingu, líkt og gildir um mörg skordýr.

BIRT: 10/05/2023

HÖFUNDUR: Jens Matthiesen

HÖFUNDARÉTTUR MYNDA: Shutterstock,© Rachael Feord, University of Cambridge

vinsælustu greinarnar

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu með áskrifandi að blaðinu?

Áskrifendur geta fengið áskrift af vefnum hér

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is