Náttúran

Ófreskjuhákarlinn mældur

Nýir útreikningar sýna hvernig hinn tröllvaxni forsögulegi hákarl hefur sennilegast litið út. Hann virðist hafa verið hraðsynt rándýr og mögulega líka hrææta.

BIRT: 06/06/2023

Í fyrsta sinn hafa vísindamenn reiknað út stærð og þyngd stærsta hákarls sem nokkru sinni hefur lifað í höfunum.

 

Um allan hnöttinn hafa fundist tennur úr megalodon sem réð ríkjum í heimshöfunum í 20 milljón ár þar til hann dó út fyrir um 3 milljónum ára. En hvernig hann leit út er hins vegar óvíst. Háfar eru brjóskfiskar og beinagrindin tærist því auðveldlega. Vísindamenn hafa því ekki annað að byggja á en tennurnar.

 

Samanburður við tennur núlifandi háfa bendir til að megalodon hafi verið 12-20 metra langur og hann er oft sýndur sem ofvaxin útgáfa af hvítháfi. Nú teikna vísindamenn hjá Bristolháskóla í Englandi upp talsvert nákvæmari mynd af þessum risaháf.

16 metra ógnvaldur

Á grundvelli líkmsbyggingar 5 núlifandi háfa hafa vísindamenn teiknað upp mynd af hinum útdauða megalodon.

 

1. Bakugginn veitti stöðugleika

Smávaxinn og bogadreginn bakuggi veitti stöðugleika bæði á stuttum spretti og lengri vegalengdum.

 

2. Breiður haus gaf kröftugt bit

Stórar tennur eru til vitnis um að megalodon hafði öfluga kjálka og þess vegna líka kröftuga kjálkavöðva. Það hefur skapað honum þéttvaxnari og breiðari haus en t.d. hvítháfnum.

 

3. Hár sporður gaf drifkraft

Eins og hjá öðrum háfum var efri sporðblaðkan stærri en sú neðri. Þessi lögun er dæmigerð fyrir fiska sem aðeins nota sporðinn til að spyrna sér áfram.

Í stað þess að miða einvörðungu við hvítháfinn mældu þeir fjölmarga líkamshluta núlifandi háfategunda. Á þessum grundvelli reiknuðu þeir út hvernig líklegast væri að 16 metra langur háfur liti út en það er tvöföld lengd hvítháfs.

 

Bakaugginn á stærð við manneskju

Niðurstöðurnar sýndu að höfuð þessa forsögulega háfs hefur verið 4,65 metrar að lengd, bakugginn 1,62 metrar að hæð og sporðurinn 3,85 metrar. Mælt frá toppi bakuggans hafa verið 4,53 metrar niður fyrir kviðinn.

Megalodon dó út fyrir um 3 milljónum ára og hefur aðeins skilið eftir sig tennur. Þær eru allt að 18 sm langar, meira en þreföld lengd tanna hvítháfs.

Vísindamennirnir gera ráð fyrir að eins og aðrir stórir háfar hafi megalodon verið með fremur lítinn, bogadreginn bakugga.

 

Hausinn hefur aftur á móti verið breiður vegna mjög öflugra bitvöðva. Að öllu samantöldu hefur líkamsbyggingin hentað vel til snöggra árása sem krefst mikillar hraðaaukningar en háfurinn hefur líka verið vel fær um að synda langar vegalengdir á jafnari hraða. Þannig hefur hann verið fær um að leita bráðar á stóru svæði og grípa í hræ á hafsbotni við og við.

LESTU EINNIG

HÖFUNDUR: Jens Matthiesen

Shutterstock,© Oliver E. Demuth

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Alheimurinn

NASA uppgötvar dularfullan hlut sem er 27.000 sinnum stærri en jörðin – hreyfist á 1,6 milljón km/klst.

Maðurinn

Lyktin afhjúpar öll þín leyndarmál: Lyktin er hið nýja fingrafar

Tækni

Líkami þinn er orkuver

Jörðin

Myndast skýstrókar í Norður-Evrópu?

Lifandi Saga

Hver var fyrsti þekkti guðinn?

Lifandi Saga

Hvenær fórum við að kyssast?

Maðurinn

Hvers vegna verður maður þreyttur eftir að hafa borðað?

Lifandi Saga

Hvers vegna eru til herra- og kvenreiðhjól?

Maðurinn

Lítið en mikilvægt atriði í uppeldinu getur haft mikil áhrif seinna á lífsleiðinni

Heilsa

Sérfræðingar í sykursýki: Jafnvel lítið magn af þessari tegund matar getur aukið hættuna um 15 prósent.

Maðurinn

Þú ert tveimur sekúndum frá því að springa úr reiði

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.790 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is